ClubsDock · Hollensk hönnun

Golfbúnaðurinn þinn á skilið betri stað en gólfið.

Vegghengd geymsla fyrir golfpokann. Sterk, stillanleg og hentar bæði innan- og utandyra.

Frí heimkeyrsla á höfuðborgarsvæðinu

  • Ber allt að 50 kg Sterkbyggður stálgrunnur
  • Fyrir alla golfpoka Stillanlegt rennikerfi, pokar yfir 79 cm
  • Inni og úti Húð sem ver gegn ryði og tæringu

Einföld hugmynd

Pokinn upp á vegg. Gólfið autt.

ClubsDock heldur golfpokanum uppréttum, öruggum og stöðugum á veggnum – sparaðu gólfplássið með ClubsDock.

Festingin – stílhrein og fyrirferðarlítil
01 Festingin – stílhrein og fyrirferðarlítil
Pokinn á sínum stað
02 Pokinn á sínum stað

Hvers vegna ClubsDock?

Premium hönnun. Hannað fyrir golfara.

Hollensk hönnun sem heldur búnaðinum þínum öruggum, snyrtilegum og alltaf tilbúnum.

  • 50 kg

    Burðargeta

    Sterkbyggður grunnurinn ber allt að 50 kg. Traust bakið heldur pokanum frá veggnum svo hvorki óhreinindi né rispur komast að.

  • 79+ cm

    Passar öllum golfpokum

    Rennikerfið stillist auðveldlega að golfpokum af öllum stærðum yfir 79 cm.

  • Stál

    Inni og úti

    Hágæða stál með sérstakri húð sem ver gegn ryði og tæringu.

  • Gúmmí

    Ver kylfurnar

    Gúmmíhúðaður krókurinn kemur í veg fyrir að pokinn velti og ver kylfusköftin gegn rispum.

Svona virkar það

Þrjú skref. Snyrtilegt rými.

  1. 01

    Festu á vegginn

    Settu festinguna upp þar sem pokinn á að vera – inni eða úti.

  2. 02

    Stilltu eftir stærð pokans

    ClubsDock Pro - Rennikerfið stillist eftir stærð golfpokans svo að hann sitji rétt. ClubsDock Regular stillir þú með sexkanti, eftir stærð golfpokans.

  3. 03

    Hengdu pokann upp

    Gúmmíhúðaður krókurinn heldur pokanum stöðugum og ver kylfusköftin.

Fyrir hverja er ClubsDock?

ClubsDock er frábær lausn fyrir geymsluna, golfklúbba og golfherma.

ClubsDock Ísland er einkadreifingaraðili ClubsDock á Íslandi. Við bjóðum sérkjör fyrir fyrirtæki og stærri pantanir – hafðu samband og við finnum lausn sem hentar.

  • Golfklúbbar
  • Golfhermar
  • Búningsklefar

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Finnurðu ekki svarið? Sendu okkur línu og við aðstoðum þig.

Hafa samband
Hvenær fæ ég vöruna?


Varan er til á lager og fer af stað strax. Á höfuðborgarsvæðinu keyrum við hana heim til þín að kostnaðarlausu innan tveggja sólarhringa. Utan höfuðborgarsvæðisins sendum við með Póstinum.

Passar ClubsDock fyrir minn golfpoka?

Já. Rennikerfið stillist að golfpokum af öllum stærðum yfir 79 cm.

Má setja ClubsDock upp utandyra?

Já. ClubsDock er úr hágæða stáli með sérstakri húð sem ver gegn ryði og tæringu og hentar því bæði innandyra og utandyra.

Hvað ber festingin mikið?

Sterkbyggður grunnurinn ber allt að 50 kg.

Bjóðið þið kjör fyrir fyrirtæki?

Já – fyrir golfklúbba, golfherma. Hafðu samband og við gerum þér tilboð.