ClubsDock · Hollensk hönnun
Golfbúnaðurinn þinn á skilið betri stað en gólfið.
Vegghengd geymsla fyrir golfpokann. Sterk, stillanleg og hentar bæði innan- og utandyra.
- Ber allt að 50 kg Sterkbyggður stálgrunnur
- Fyrir alla golfpoka Stillanlegt rennikerfi, pokar yfir 79 cm
- Inni og úti Húð sem ver gegn ryði og tæringu
Einföld hugmynd
Pokinn upp á vegg. Gólfið autt.
ClubsDock heldur golfpokanum uppréttum, öruggum og stöðugum á veggnum – sparaðu gólfplássið með ClubsDock.
Hvers vegna ClubsDock?
Premium hönnun. Hannað fyrir golfara.
Hollensk hönnun sem heldur búnaðinum þínum öruggum, snyrtilegum og alltaf tilbúnum.
-
50 kg
Burðargeta
Sterkbyggður grunnurinn ber allt að 50 kg. Traust bakið heldur pokanum frá veggnum svo hvorki óhreinindi né rispur komast að.
-
79+ cm
Passar öllum golfpokum
Rennikerfið stillist auðveldlega að golfpokum af öllum stærðum yfir 79 cm.
-
Stál
Inni og úti
Hágæða stál með sérstakri húð sem ver gegn ryði og tæringu.
-
Gúmmí
Ver kylfurnar
Gúmmíhúðaður krókurinn kemur í veg fyrir að pokinn velti og ver kylfusköftin gegn rispum.
Vörur
Veldu þína ClubsDock.
Frí heimkeyrsla á höfuðborgarsvæðinu og sent um allt land með Póstinum.
-
ClubsDock Pro
34,900 krSama úrvalshönnun og ClubsDock Regular – með loftpúða. Loftpúðinn gefur hljóðláta, mjúka hreyfingu upp og niður og milda lokun. Hentar...
Skoða vöru -
ClubsDock Regular
29,900 krStillist að þínum golfpoka á augabragði. Rennikerfið á hliðinni gerir þér kleift að stilla ClubsDock Regular að hæð pokans á...
Skoða vöru -
ClubsDock Shoe Holder
9,900 krVeggfest hilla fyrir golfskóna sem passar við ClubsDock-golfpokafestingarnar. Skórnir fara upp af gólfinu svo bílskúrinn eða golfherbergið helst snyrtilegt.Dufthúðað stál...
Skoða vöru
Svona virkar það
Þrjú skref. Snyrtilegt rými.
-
01
Festu á vegginn
Settu festinguna upp þar sem pokinn á að vera – inni eða úti.
-
02
Stilltu eftir stærð pokans
ClubsDock Pro - Rennikerfið stillist eftir stærð golfpokans svo að hann sitji rétt. ClubsDock Regular stillir þú með sexkanti, eftir stærð golfpokans.
-
03
Hengdu pokann upp
Gúmmíhúðaður krókurinn heldur pokanum stöðugum og ver kylfusköftin.
Fyrir hverja er ClubsDock?
ClubsDock er frábær lausn fyrir geymsluna, golfklúbba og golfherma.
ClubsDock Ísland er einkadreifingaraðili ClubsDock á Íslandi. Við bjóðum sérkjör fyrir fyrirtæki og stærri pantanir – hafðu samband og við finnum lausn sem hentar.
Spurt og svarað
Algengar spurningar
Finnurðu ekki svarið? Sendu okkur línu og við aðstoðum þig.
Hafa sambandHvenær fæ ég vöruna?
Varan er til á lager og fer af stað strax. Á höfuðborgarsvæðinu keyrum við hana heim til þín að kostnaðarlausu innan tveggja sólarhringa. Utan höfuðborgarsvæðisins sendum við með Póstinum.
Passar ClubsDock fyrir minn golfpoka?
Já. Rennikerfið stillist að golfpokum af öllum stærðum yfir 79 cm.
Má setja ClubsDock upp utandyra?
Já. ClubsDock er úr hágæða stáli með sérstakri húð sem ver gegn ryði og tæringu og hentar því bæði innandyra og utandyra.
Hvað ber festingin mikið?
Sterkbyggður grunnurinn ber allt að 50 kg.
Bjóðið þið kjör fyrir fyrirtæki?
Já – fyrir golfklúbba, golfherma. Hafðu samband og við gerum þér tilboð.