Refund policy

Skilareglur og forpantanir

Forpantanir: Forpantaðar vörur eru afhentar þegar þær koma til landsins. Áætluð afhending er um miðjan til lok október 2026. Við sendum tölvupóst um leið og pöntunin er send af stað. Ef afhending tefst umfram það látum við þig vita strax og þú getur afpantað og fengið fulla endurgreiðslu.

Réttur til að falla frá kaupum: Þú hefur 14 daga til að falla frá kaupum, talið frá þeim degi sem þú færð vöruna í hendur. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Kaupandi greiðir sendingarkostnað við skil nema annað sé samið.

Endurgreiðsla: Endurgreiðsla fer fram á sama greiðslumáta og notaður var við kaupin innan 14 daga frá því að við fáum vöruna aftur.

Gölluð vara: Ef varan reynist gölluð eða skemmd við móttöku hafðu samband við okkur strax og við bætum úr því. Um ábyrgð fer samkvæmt lögum um neytendakaup.

Hafa samband: clubsdockisland@gmail.com